Að kvöldi 16. júní verður júbílantahátíð MA stúdenta haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri í 21. sinn.
Hátíðarkvöldið hefst með fordrykk kl. 18:00 en borðhald hefst kl. 19:00. Gamli góði Bautinn framreiðir mat og meðan á borðhaldi stendur verða skemmtiatriði frá afmælisárgöngum. Að sjálfsögðu verður mikið sungið undir borðum.
Hvanndalsbræður með Magna Ásgeirsson í fararbroddi munu halda uppi fjörinu en þeir spila danstónlist við allra árganga hæfi. Einnig verður gömlu dansa hljómsveit í minni sal.
Húsið opnar kl. 18. Fordrykkur kl. 18-18:45.
Veislustjórar: Sigurður Ingólfsson og Pétur Halldórsson
Miðapantanir:
Pantið miða með því að smella á Panta miða hnappinn vinstamegin á síðunni frá18 Maí. Miðar verða
afhentir í Íþróttahöllinni dagana 15. og 16. júní kl. 13-17. Síðasti dagur til að skrá sig á
hátíðina er 13.júní.
Þeir aðilar sem ekki hafa aðgang
að tölvu geta hringt á Bautann 462-1818 og látið skrá sig þar. Hafa samband við skrifstofu.
Miðaverð:
9900 kr
fyrir 1 árs stúdenta er
verðið 5900 kr.
Verð miða á danskleik: 3900 kr. (eftir kl. 23.30)
Upplýsingar veitir:
Arna Elísabet Karlsdóttir
(arnaek@hotmail.com, s. 845 1002)

